Quantcast
Channel: Fagurkerar
Viewing all 1072 articles
Browse latest View live

Að stíga út fyrir þægindarammann getur gert meira en þig grunar

$
0
0

Einn mánudagsmorgun vaknaði ég með hugmynd í kollinum sem ég framkvæmdi aðeins örfáum mínútum síðar.    

Ég á það nú til að vera svolítið hvatvís og ef mér dettur eitthvað í hug geri ég það oft bara strax. Hik er sama og tap eða já ég geri það bara, why not eru setningar sem eiga mjög vel við mig.

En eins og ég er oft á tíðum opin og framkvæmdaglöð þá á ég það alveg jafn mikið til að vera föst í hinum svokallaða „þægindaramma“… þori litlu að breyta þegar það kemur að sjálfri mér, þá aðallega útliti mínu.

Af hverju er ég svona hrædd við það? Þar kemur sterkt inn hvernig ég hugsa oft um mig sjálfa, þá á ég við hvernig ég tala allt of oft neikvætt til mín.
Líklegast hef ég verið hrædd um að fólk dæmi mig, en vitið þið hvað?… ég komst að því að ég er minn versti dómari!

Nú kemur að því sem þessi færsla snýst um. Af hverju fannst mér svona magnað að nota nýjan varalit á hverjum degi í eina viku? Og af hverju finnst mér það svona merkilegt að draga varalit upp úr varalitaboxinu mínum með lokuð augun og VERÐA að nota þann varaLIT í heilan dag sem ég dró blindandi?

Ég hef alltaf gengið með NUDE varaliti (þessa húðlituðu varaliti) og helst viljað vera með varir mínar eins ljósar og ég gæti.

Svona hef ég helst alltaf viljað hafa varirnar mínar á "litinn".

Svona hef ég helst alltaf viljað hafa varirnar mínar á “litinn”.

Af hverju? Jú, af því ég taldi mér trú um það að ég væri miklu sætari þannig. Ég var búin að ákveða að ég væri einfaldlega ljót með dökka liti, rauða liti eða bara LITI yfir höfuð. Svona hef ég í alvöru hugsað og það er alls ekki gott fyrir neinn að tala svona niður til sín.

En ég lét vaða í þessa áskorun á sjálfa mig, sýndi allt á Snapchatinu mínu og sett inn mynd af hverjum varalit á Instagram og notaði #7daysofnewlipstick.

Ég hefði aldrei trúað viðbrögðunum sem ég fékk við þessu litla (samt stóra) verkefni mínu, hrósin sem ég fékk og skilaboðin sem ég fékk send eru mér ómetanleg! Mínir Snapchat fylgjendur eru þeir allra allra bestu… já ég sagði það, BEST <3

Það sem þetta kenndi mér er að það er allt í lagi að stíga út fyrir þennan blessaða þægindaramma!!! Og það sem ég lærði hvað mest af þessu öllu saman er að ég er bara ég, sama hvaða varalit ég er með. Og það kenndi mér líka eitt mikilvægt eftir að hafa deilt þessu með ykkur öllum er að ég er ekki ljót þó ég noti varalit, ég lærði að tala ekki svona illa til mín þegar ég horfi í spegil.

Stundum þarf ekki meira til en að skipta bara um varalit… það kennir manni bara ansi margt!

Ég segi bara eitt stórt TAKK og ég mæli með að ÞÚ gerir eitthvað sem lætur þig stíga út fyrir þægindaramman, alveg sama hversu lítil skref þú tekur… DO IT!!! Það mun koma þér skemmtilega á óvart að breyta aðeins til, hrissta upp í tilverunni og læra að meta nýja hluti í fari þínu.

#Dagur1

#dagur1

#Dagur1

#Dagur2

  • Embellishment frá NYX Cosmetics
  • Keypti hann í London. 
  • Á Íslandi er NYX fáanlegt í Hagkaup.
#Dagur2

#Dagur2

#Dagur3

Dagur 5

Dagur 3

#Dagur4

  • Drottningin frá Deisymakeup
  • Fæst á www.deisymakeup.is
  • Þennan fékk ég að gjöf frá henni yndislegu Ásdísi hjá Deisymakeup. Hún sá áskorunina á snappinu og var svo sæt að senda mér nokkra liti. Það var samt algjör tilviljun að ég dró lit frá henni þennan dag <3
#Dagur4

#Dagur4

18644334_10155100979546413_914962102_n 18624665_10155100989421413_1841972400_n 18643740_10155100989431413_832395036_n

#Dagur5

Click to view slideshow.

#Dagur6

#Dagur6

#Dagur6

#Dagur7

  • Tea & Cookies úr Liquid Suede línunni frá NYX
  • Keypti hann í Hagkaup.

 

 

Dagur 7

Dagur 7

 

Ef þið hafið viljið fylgjast meira með mínum uppátækjum þá finnið þið mig  á Snapchat & Instagram undir: THOREYGUNNARS

 

                                 signature_aw3ly1nosdeff7oshs (2)

 


Hawaii Luau partý

$
0
0

Ég var með Eurovision partý um daginn fyrir vini mína en við í vinahópnum hittumst alltaf á Eurovision og höfum gaman saman. Við tökum þetta yfirleitt alla leið og erum með veðbanka, stigakeppni og sérstakan eurovision drykkjuleik svo það er nóg um að vera. Ég ákvað strax að vera með eitthvað þema þar sem ég er alveg sjúk í þemapartý og af því ég var komin í svo mikið sumarskap ákvað ég að vera með Hawaii Luau þema ! Það skemmir heldur ekki fyrir að þrjár úr vinahópnum eru nýlega búnar að vera á Hawaii.

unnamed-34

Ég var nýbúin að vera í Partýbúðinni þannig að ég vissi að þau voru með alveg rosalega flott úrval af Hawaii skreytingum og dóti tengdu því þema svo þetta var alveg tilvalið. Ég skellti mér því aftur í Partýbúðina og plataði þau með mér í smá samstarf sem þau voru sko alveg til í. Ég fékk því að velja allskonar flott og sniðugt skraut hjá þeim og leið alveg eins og litlu barni í nammibúð.

Þetta flotta hengi tók á móti fólkinu þegar það mætti

Þetta flotta hengi tók á móti fólkinu þegar það mætti

 

pjimage-11

Ég skreytti fyrir partýið á fimmtudeginum til að lenda ekki í tímaþröng og þetta var ekkert smá skemmtilegt en það er fátt sem mér finnst skemmtilegra en að skreyta !

unnamed-25

Til að gera bakgrunninn bakvið borðið notaði ég einnota plastdúk sem ég límdi á vegginn. Ég gerði svo ramma utanum all saman með marglitum blöðrum og límdi TIKI BAR skiltið á vegginn.

Screen Shot 2017-05-27 at 09.59.39

Gjafapappírrúlla og hawaii kransar !

 

Ég bjó svo til súlurnar á endanum á borðinum með 2 gjafapappírsrúllum límdum saman og svo vafði ég svona hawaii krönsum utanum rúllurnar og festi með límbandi. Þetta rammaði borðið inn mjög skemmtilega og ekkert smá einfalt að gera þetta. Ég setti svo einnota dúka á bæði matarborðið og drykkjarstöðina og utanum bæði borðin vafði ég svona hawaii lengju sem er eins og strápils en ég notaði einn pakka sem ég klippti niður á bæði borðin. 

Svona var þetta kvöldið fyrir partíið - allt að verða ready !

Svona var þetta kvöldið fyrir partíið – hér sjáið þið risa pálmatréið mitt vel en það var hengt í loftið !

 

Kransinn sem ég föndraði var ekkert smá einfaldur en ég notaði bara 4 pakka af svona skrautregnhlífum sem ég stakk í gamlan jólakrans

IMG_4513

Ég var með nokkrar alveg magnaðar skreytingar eins og risastórt hangandi pálmatré sem var held ég 2,5 m á hæð. Eins var ég með uppblásið pálmatré sem var 1,8m á hæð og Sæþóri  manninum mínum fannst ofsalega gaman að blása upp. Greyið hann fær oft að finna fyrir þvi þegar þemaæðið heltekur mig 😉 

 

 

unnamed-24

Maturinn sem ég bauð uppá í veislunni varð að sjálfsögðu að vera í Hawaii stíl þannig að ég skellti mér á google vin minn til að leita mér að hugmyndum. Ég ákvað strax að vera með allskonar smárétti en ég er ótrúlega hrifin af smáréttum og finnst þeir alveg snilld þegar þú ert að bjóða í veislu. 

unnamed-16

Matseðillinn :

  • mini borgarar með osti,beikoni, sósu og grænmeti
  • mini borgarar með pulled pork, majónesi, káli og rauðlauk
  • kjúklingaspjót bbq
  • kjúklingaspjót kókos með mangósósu
  • grillaðar risarækjur með sweet chili og hvítlauk á spjóti 
  • útskorinn anans með ídýfu í og snakk og grænmeti til hliðar
  • “ostakúla” úr rjómaosti, púrrulauk, ananas, pekahnetum og papriku mótuð eins og ananas, skreytt með pekahnetum og ananas. 
  • ávaxtaspjót með anana, melónu, jarðaberjum og vínberjum
  • cupcakes með grænu, bláu, gulu, bleiku og orange kremi og sólhlífum á sem skraut

 

unnamed-17

Svona var Hawaii partíið mitt og ég er sko spennt að halda annað við fyrsta tækifæri. Ef þið eruð að spá í að halda Hawaii partý þá mæli ég með því að kíkja fyrst á netið og skoða allskonar Hawaii skreytingar til að fá skemmtilegar hugmyndir og skella ykkur svo í Partýbúðina.

pjimage-10

 

unnamed-27

 

 

hronn

 

Flughræðslu-tips Tinnu

$
0
0

 

Jæja….Ég veit að það er kannski mjög kaldhæðnislegt að ég sé að skrifa bloggfærslu um flughræðslutips, þar sem ég er mjög flughrædd, EN mig langar til þess að segja ykkur frá þeim aðferðum sem ég nota sem gera flugið bærilegra.

Eftir að ég fór til Svíþjóðar í maí þá spurði ég á snappinu mínu hvort það væri áhugi fyrir svona færslu & ég fékk rosalega mikil viðbrögð & hef verið að fá spurningar um þetta síðan þannig ég er mjög ánægð að vera loksins komin með færslu um þetta fyrir ykkur & vonandi munu þessi tips hjálpa til.

Flughræðslan mín byrjaði bara þegar ég byrjaði að fara í flug. Fyrir utan fyrsta skiptið sem ég fór, þá var ég 12 ára & vissi ekki hvað það var að vera flughrædd. En næst þegar ég fór til útlanda um 13 ára þá var þetta byrjað. Mamma mín er (eða var) rosalega flughrædd. Það var þannig hjá henni meira segja eitt árið að hún ætlaði til London en fékk slæma tilfinningu fyrir fluginu & hætti við..& flaug ekki í einhver ár eftir það.

Ég s.s. horfi upp á mömmu svona svakalega flughrædda þannig að ég einhvernveginn dregst inn þetta líka. Ég hef farið til útlanda allavega 16 sinnum ef ég er ekki að gleyma einhverju skipti en ég fer m.a. til Glasgow árlega. Ég hef aldrei látið flughræðsluna stoppa mig en hef notað alls konar aðferðir til að hjálpa mér.

Flughræðslan mín er búin að skána rosalega mikið undanfarin ár, enda veit ég það alveg hvað það er pínu kjánalegt að vera svona hrædd að fljúga þar sem það er svo bara mjög öruggt 😉 Ég hef heyrt að flughræðsla sé hámark stjórnseminnar þar sem að maður er auðvitað að treysta öðrum fyrir lífi sínu ef eitthvað kemur upp..

Áður fyrr var ég alveg svaaakaleg. Ég byrjaði að vera stressuð & sofa illa svona tveimur vikum fyrir flugið. Svo þegar það kom að þessu fékk ég alltaf illt í magann & gat með engu móti borðað neitt fyrir flug (það er reyndar enn svoleiðis hjá mér en er þó orðin skárri). Ég fór alltaf beint á barinn & fannst áfengi hjálpa mér mikið, en ég var aldrei eitthvað haugadrukkinn heldur fékk mér kannski tvo bjóra eða eitthvað til að róa mig aðeins niður & mér fannst það virka vel.

En hér fyrir neðan ætla ég að telja upp hlutina sem hjálpa mér, en ég ætla að fá að taka fram að þetta eru hlutir sem hjálpa MÉR & það hentar eflaust ekki það sama fyrir alla & ég er auðvitað vel yfir 20 ára þannig að ég mæli auðvitað aldrei með áfengi eða róandi fyrir þá sem eru ekki orðnir nógu gamlir.

 

Áfengi  -& alls ekki mikið af því! Annað hvort tvö hvítvínsglös eða tveir bjórar & maður er í fínum málum

 

Öndun -anda inn & anda út! Mér finnst hjálpa mjög mikið í flugtaki að anda djúpt inn með nefinu & út um munninn & hafa augun lokuð á meðan. Finnst þetta hjálpa langmest þegar ég er hrædd

 

Tónlist -ég verð að vera með tónlist í eyrunum í flugtaki (enda er flugtak það sem mér finnst erfiðast) & er með tónlistina mjög hátt stillta svo ég heyri ekki þessi óhljóð sem eru í vélinni….sem eru samt bara ósköp venjuleg hljóð en óþægilegt að heyra ef maður er hræddur..

 

Róandi tafla (þetta er algjört neyðarúrræði & þarf að fá hjá lækni!)  -þetta var eitthvað sem ég ákvað að prófa eftir að hafa verið flughrædd í öll þessi ár. Ég tók eina töflu á leiðinni heim frá Svíþjóð núna í maí & mér fannst taflan hjálpa. ATH það má alls ekki drekka með svona töflum! Ég mæli bara með þessu fyrir aðila sem eru MJÖG flughræddir annars er algjör óþarfi að vera að taka svona töflu! Ég held meira segja að ég sé orðin það góð núna að ég þurfi ekkert á svona töflu að halda aftur. –> Algjört neyðarúrræði

 

Svefn -mjög mikilvægt að fara að sofa á skikkanlegum tíma fyrir flug. Ef ég er að fara í morgunflug finnst mér best að fara upp í rúm bara helst um kl 21 því ég á alltaf erfitt með að sofna fyrir flug

 

Common sence -Jebb..það hefur hjálpað mér mikið að nota common sence. Hugsa um hvað það eru FÁRÁNLEGA margar flugvélar í loftinu akkurat núna & bara alltaf! Alltaf þegar ég kem heim eftir að hafa verið í útlöndum segi ég alltaf “woohoo við lifðum þetta af” því mér finnst í alvörunni áhætta að fara til útlanda & finnst ég vera að hætta lífi mínu..voða dramatískt I know!

 

 

Þetta er allt sem mér dettur í hug & ég vona að þetta muni hjálpa einhverjum! :)

Ég er að fara til Glasgow í september & Belfast í október & fór til Svíþjóðar í maí þannig það er svo sannarlega hægt að segja að ég læt flughræðsluna ekki stoppa mig, en þessi atriði sem ég taldi upp hér að ofan gera flugið mun bærilegra!

 

Góða ferð allir saman & ég vona innilega að einhverjir flughræddir þarna úti hafi fundið sér eitthvað sniðugt tips við þennan lestur.

 

 

TF

Þið finnið mig á Snapchat: tinnzy88
& Instagram: tinnzy

 

 

 

Drykkjarbar í veislu og góð ráð

$
0
0

Ég hef alltaf haft gaman af skemmtilegum útfærslum á drykkjum í veislum og hef pælt mikið í þeim þegar kemur að mínum veislum.

Afhverju ættu óáfengir drykkir að vera eitthvað minn spes en þeir áfengu?Ég kann ráð við því

 

IMG_20170527_155355 - Copy

Ég á nokkra svona drykkjardúnka með kana sem ég hika ekki að við að  nýta við hvaða tilefni sem er. Það eru allir spenntir að prófa þó svo að þeir myndu innihalda einungis vatn með klökum þá vekur þetta athygli.

Ég hef komið mér upp þremur uppskrifum af óáfengum kokteilum sem ég nýti mér oft í veislum.

IMG_20170527_155343 - Copy
Jarðarberjagos

2 lítrar af rauðum kristal plús
2 stk rauður jarðarberja Sun Lolly ís

Klakar

Jarðarber eða sítrónusneiðar

 IMG_20170527_155344 - Copy

Límónaði

3 dl egils þykkni með sítrónu og líme bragði

2 dl sódavatn með sítrónu

Appelsínusneiðar og sítrónusneiðar

Klakar

IMG_20170527_155348 - Copy

 

Sítrónusódavatn

Sódavatn með sítrónubragði

Sítrónusneiðar

Klaki

 

Þessi er auðvitað sá allra einfaldasti en nauðsynlegt að bjóða uppá sykurlausan drykk og þessi er ávallt vinsæll

 

Hvað varðar val á víni þá reyni ég að velja vín sem hentar flestum og er nokkuð hagstætt í innkaupum. Ég var með þessa rauðvínstegund  í brúðkaupinu mínu 2014 og er það í svolitlu uppáhaldi síðan þá.

Hvítvínið var sumarlegt og sætt og fór vel af því. Það passaði vel með matnum og ekki síður vinsælt seinna um kvöldið.

IMG_20170527_153442 - Copy

 

Ég valdi tvær tegundir af bjór þar sem smekkur manna er misjafn og einnig var ég hrifin af því að fá flottan contrast í umbúðunum

IMG_20170527_155708_1

Balann keypti ég í Ilva og skiltið í Hagkaups outlettinu í holtagörðum

IMG_20170527_153445 - Copy
Léttvínsbarinn fékk fallegt skraut

IMG_20170527_153439

Fékk lánaða diskókúlu hjá góðri vinkonu

Hvað varðar magn í veislum þá langar mig að benda ykkur á sniðuga reiknivél inná vinbud.is þar sem hægt er að velja hvernig veislu um ræðis, hversu löng hún er og hversu margir gestir eru væntanlegir. Reiknivélin reiknar svo út það magn sem æskilegt er að kaupa. Ég persónulega kaupi alltaf aðeins meira því það er ekkert meira svekkjandi en að vera með of lítið.

Hérna er linkur á reiknivélina – http://www.vinbudin.is/heim/matur_og_vin/veisluvin.aspx

 

Vona að þessi ráð nýtist ykkur :)

 

Hanna

 

Kynning – Aníta Estíva

$
0
0

Hæ kæru lesendur Fagurkera!

Ég heiti Aníta Estíva og er nýjasta viðbótin hér á síðunni..

Örlítið um mig..

Ég er 29 ára, gift, 2 barna móðir í háskólanámi og vinnu. Ég er að leggja lokahönd við nám mitt í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri í fjarnámi og starfa við umönnun.

Börnin mín tvö heita Kristófer Vopni (3 ára) og Viktoría Fanney (2 ára). Maðurinn minn heitir Óttar Már og höfum við verið gift í 5 ár! 

notaT17637003_10212508901547724_5911174496039352367_o 

Ég hef áður verið að blogga en lagði það á hilluna til þess að sinna náminu betur en nú hef ég loksins örlítið meiri tíma og get farið að skrifa aftur!

Nú ef þið haldið að ég hafi ekki nóg að gera með 2 börn, mann, nám, vinnu og blogg… Þá er ég einnig pistlahöfundur á Bleikt.is.. Og með opið snapchat :) 

20161012_234437

Snap: anitaeh

Meira var það ekki í bili! Hlakka til að deila með ykkur broti úr mínu lífi..

Þangað til næst, 

aníta

DIY Kleinuhringjabar

$
0
0

Kleinuhringjabarinn var gerður í samstarfi við Krispy Kreme.

Á dögunum hélt ég útskriftarveislu og langaði að láta gamlan draum um kleinuhringjabar rætast.
Eftir miklar pælingar um hvernig væri best að útfæra barinn og búa hann til mundi ég eftir því að ég ætti gamalt Lack borð úr Ikea sem var orðið aðeins rispað og því ekki í notkun lengur.

lack-side-table-oak-effect__64054_pe172512_s4

Ég átti gamla prufudós af gammel bleikum sem ég fékk í fyrra í slippfélaginu og ákvað að prófa hana á borðið. 2 umferðir og borðið var farið að taka á sig mynd.
Ég vildi poppa þetta aðeins meira upp og ákvað að mála hornin í gylltum lit.

IMG_20170514_121133

Þá var komið að því að útfæra pinnanna sem áttu að halda kleinuhringjunum uppi.

Ég átti falleg papparör í bleikum litum og langaði að geta nýtt þau í verkefnið.

IMG_20170514_123012
Maðurinn minn mældi út borið og setti málningarlímband á það til þess að vita nákvæmlega hvar bora ætti götin á borðið.
IMG_20170514_122308
Á meðan tók ég rör og klippti eftir endilöngu og stakk því svo inn í annað rör til að fá meiri styrkingu.

IMG_20170514_132204
Hjálparhellan mín að störfum að stinga rörunum í götin.
IMG_20170514_134443
Svona leit standurinn út þegar rörin voru komin í.

IMG_20170518_190658

Ég fann þessar dúllur í söstrene grene og eru þær fullkomin stærð fyrir kleinuhringina og liturinn æðislegur.

IMG_20170518_190150

Svo kom að stóra deginum og ég fékk kleinuhringi frá Krispy kreme en original glazed eru án efa mínir uppáhalds kleinuhringir, svo einfaldir, fallegir og góðir.
IMG_20170527_132240

IMG_20170527_132231

IMG_20170527_133909

Lokaútkoman sem sló gersamlega í gegn

Takk fyrir mig Krispy Kreme :)

 

Áhugasamir geta fylgst með mér á snapchat – Hannsythora

Hanna

Hard Rock Cafe Reykjavík – frábær upplifun!

$
0
0

Í samstarfi við Hard Rock Cafe Reykjavík áttum við Fagurkerarnir frábæra kvöldstund þar saman.

Það var vel tekið á móti okkur á nýja flotta staðnum sem er staðsettur á Lækjargötunni í Reykjavík. Það verður að segjast að staðurinn er sjúklega flottur í alla staði og það kom okkur skemmtilega á óvart hvað hann er svakalega stór!

19113655_10155185856581413_2066122211777626971_n

En við byrjuðum á því að panta okkur kokteila og kvöldið byrjaði sko ekki illa fyrir okkur þar sem við vorum allar beðnar um skilríki, hversu mikil snilld er það? Við erum allar vel yfir löglegum drykkjualdri svo við vorum alsælar að þurfa að flagga kennitölunum til að mega fá okkur kokteilana sem við biðum spenntar eftir að smakka.

19145834_10155185883041413_6528879000255269095_n 19260503_10155185883206413_1908736841547796719_n 19225707_10155185882961413_5391283435642827814_n

Allar pöntuðum við okkur mismunandi rétti. Á borðinu voru hamborgarar, samlokur, Jumbo plattar, chili franskar og fleira gómsætt.

19113785_10155185883446413_2125419779388133609_n 19113832_10155185883436413_5327761910334632104_n 19225748_10155185883431413_7896484328775620063_n

 

18485398_10154715567754422_7874932373326123956_n

Maturinn var geggjaður!!! Allar vorum við mjög ánægðar með matinn. Það er eitt sem stóð algjörlega upp úr og það var Bruchetta brauðið sem var á Jumbo plattanum. Klárlega allra besta Bruchetta sem við höfðum smakkað.

Við nutum matarins og vorum lengi að borða, spjalla, taka myndir, syngja með tónlistinni sem var þrusugóð þetta kvöld, fullt af 90’s tónlist sem við fíluðum alveg í botn.

Þó við hefðum glaðar viljað fá okkur eftirrétti þá var einfaldlega ekki pláss fyrir meiri mat, við vorum svo saddar. Allt var mjög vel útilátið og við gátum ekki einu sinni klárað af diskunum.

18486369_10154715566624422_6309442562173891534_n 18519888_10154715567669422_8819995875635848742_n 18557525_10154715567004422_8565040085426448710_n

 

En við slepptum þó ekki að fá okkur Irish coffee og fleiri kokteila eftir matinn.

19149342_10155185861721413_4267921159639187599_n 19148986_10155185861586413_5134246336012819080_n 19274781_10155185861591413_6668462394038629223_n

19113613_10155185883341413_9028024345925752108_n 19113926_10155185883441413_170431270625149954_n 19145882_10155185883321413_7057181692846207938_n 19146023_10155185861171413_4747011611721526462_n 19149381_10155185861811413_422665612488542989_n 19274934_10155185861806413_5683335413459742422_n

Við viljum þakka Hard Rock kærlega fyrir okkur, við munum klárlega koma aftur!

19225118_10155185862091413_4470741071463272451_n

Þið finnið okkur á Snapchat

FAGURKERAR

FAGURKERAR

 

Að ferðast með lítið kríli – tékklisti

$
0
0

Við fjölskyldan skelltum okkur til Alicante núna í byrjun júní. Þetta var alveg yndisleg ferð en við fórum með foreldrum mínum, systur mömmu og dóttur hennar og vorum í eina viku í æðislegu húsi. Þegar við fórum var Embla dóttir okkar 4 1/2 mánaða og því nóg af hlutum sem þurfti að spá í og taka með. Ég ákvað því að skella í smá færslu sem getur vonandi hjálpað einhverjum sem er í smá vafa með hvað er best að taka með út. 

Embla og afi

Embla og afi

Ég ætla að byrja á nokkrum góðum ráðum fyrir þá sem stefna á að fara erlendis með svona lítið kríli.

  • Góð kerra er algjört lykilatriði í svona ferð. Við vorum með Silver Cross zest kerru og ég mæli algjörlega með henni í svona ferð. Þessi kerra er alveg fislétt og það er mjög þægilegt að leggja hana saman.  Það er með henni taska sem passar akkurat fyrir kerruna sem er snilld fyrir flugið til að verja kerruna fyrir hnjaski. Við vorum með Emblu í kerrunni alveg upp að flugvélinni og þá lögðum við hana bara saman og skelltum henni í töskuna og þar kom flugvallarstarfsmaður og tók hana og fór með í farangursgeymsluna. Við ákváðum að sleppa því að taka með okkur bílstólinn hennar og vera með hana í kerrunni á flugvellinum í staðinn og leigja svo bara bílstól úti á bílaleigunni til að þurfa ekki að vera að dröslast með bæði með okkur.
  • Við vorum bara í viku en okkur fannst það of stutt og ég hefði alveg verið til í að vera frekar í 10 daga. Við vorum nýkomin í góða rútínu með hana úti þegar við þurftum að fara heim og það hefði verið æðislegt að eiga nokkra auka daga eftir að allt var orðið afslappaðra. Það er líka heljarinnar pakki að fara út með svona unga og nóg sem þarf að skipuleggja og taka með og þá er synd að vera ekki aðeins lengur fyrst maður er á annað borð kominn á staðinn. Mér hefði þó fundist aðeins of mikið að vera í 2 vikur af því þetta var jú talsverð vinna að hugsa um hana í svona allt öðru umhverfi en hér heima en 10-11 dagar hefði verið fullkomið !
  • Ég mæli alveg 100% með því að leigja sér frekar hús eða íbúð heldur en að vera á hóteli ef það er möguleiki. Við vorum í mjög flottu húsi með einkasundlaug og frábærri aðstöðu og það var ótrúlega þægilegt að geta bara sett hana inn að leggja sig eða að sofa á kvöldin og þurfa ekki að fara inn sjálfur heldur geta verið úti meðan hún svaf. 
  • Mér fannst Embla á fínum aldri til að fara í svona ferð og ég hefði ekki viljað hafa hana mikið yngri. Svo mun þægilegra að vera með þau að ferðast þegar þau eru farin að halda haus vel og búin með allt magakveisuvesen. Ég hefði t.d. alls ekki notið þess að vera úti með hana 3ja mánaða af því þá var hún svo slæm af kveisu að það komst ekkert annað að allan sólarhringinn – gott að hugsa út í þetta ef maður er að panta ferð með miklum fyrirvara, jafnvel áður en barnið er fætt að reyna að stefna að því að fara ekki fyrr en helsta kveisutímabilið er búið bara EF barnið skyldi fá kveisu
  • Ég mæli algjörlega með því að ferðast með fleira fólki heldur en bara þú og makinn ásamt barni/börnum. Við vorum með báða foreldra mína, systur mömmu og dóttur hennar og því var nóg af fólki til að sinna Emblu og leysa okkur af og því varð þetta aðeins meiri afslöppun og frí fyrir okkur Sæþór heldur en ef við hefðum bara verið tvö ein. Svo er líka bara svo miklu meira stuð ef það eru fleiri en við hlógum og skemmtum okkur alveg ótrúlega mikið í ferðinni. 
  • Ef það eru nokkrir mismunandi flugtímar í boði þá mæli ég með því að velja þann flugtíma sem er á svipuðum tíma og hefðbundinn svefntími hjá barninu. En við t.d. flugum heim kl 1 eftir miðnætti og Embla svaf ALLA leiðina og bæði á flugvellinum úti og hér heima sem var ekkert smá þægilegt. 
  • Það var barnalæknir sem mælti með því að gefa barninu stíl og saltvatnsdropa fyrir flugið sem ég gerði ca 30 mín áður en við fórum í loftið. Hann sagði mér að oft væru ung börn í flugi að gráta útaf lofti í maga og verkjum tengdum því og stíllinn hefði góð áhrif á þá verki. Þetta virkaði mjög vel hjá okkur og þó hún hafi verið vakandi stóran hluta af fluginu út þá grét hún ekki neitt og virtist bara líða mjög vel. 
  • Ég mæli með því að taka með babynest út. Ef flugið ykkar er á svefntíma barnsins þá mæli ég með að taka babynest með í flugvélina. Við gerðum það á heimleiðinni og það var algjör snilld. Við hölluðum bakinu á kerrunni aftur og lögðum babynest í kerruna og hana ofan í og þannig svaf hún á flugvellinum og svo bárum við hana bara inn í flugvél í babynest og settum hana í sætið á milli okkar og þannig svaf hún alla leiðina og svo bárum við hana í því útúr flugvélinni og í kerruna sína aftur og alltaf svaf barnið. Eins notuðum við það mikið þegar við létum hana leggja sig á daginn. Þá settum við hana í babynest ofan í kerrunni með bakið alveg aftur og létum hana sofa þannig og þá var hægt að rugga henni í svefn og keyra hana um (var svolítið erfið að fara að sofa á daginn þarna úti svo það þurfti að rugga henni ansi mikið). Eins létum við hana sofa á nóttunni í babynest ofan í barnarúminu sem fylgdi húsinu af því mér fannst það mun huggulegra en að leggja hana beint í þetta rúm.

IMG_4600

Ég eyddi miklum tíma í að skoða síður á netinu og allskonar spjallþræði og umræður varðandi það hvað væri nauðsynlegt að taka með fyrir svona ung börn og það var margt sem ég las sem mér hefði ekki dottið í hug að taka með mér svo ég er mjög glöð að hafa lagst í smá rannsóknarvinnu áður en ég byrjaði að pakka .  Ég held að það sé ekkert sem ég sá eftir að hafa skilið eftir heima og fáir hlutir sem ég tók með út sem voru ekki notaðir svo ég held að pökkunar listinn minn sé bara nokkuð góður. Hér kemur hann. 

 

Skiptitaskan sem fór með inn í flugvél

  • auka föt á barnið, jafnvel 2 dress til öryggis
  • aukabolur á mömmuna (alveg týpískt að fá ælugusuna beint yfir sig í flugtaki! )
  • stílar og nefspray
  • auka snuð
  • snudduband (svo snuðið týnist ekki)
  • blautklútar og bleiur (ég tók 6 stk með í hvort flug)
  • bleiupokar, lyktareyðandi (must ef það kemur einhver sprengja)
  • skiptidýna ferða (til að skipta á barninu á flugvelli og í flugvél)
  • dót sem barnið hefur gaman af (ég tók 2 stk)
  • taubleiur 2 stk 
  • peli, nan mjólk í fernu (mun þægilegra að nota fernu en duft þegar þú ert að ferðast)
  • pelahitari ( ég á æðislegan pelahitara frá Difrax sem fer mjög lítið fyrir sem ég tók með mér)
  • 1 hlýtt teppi 
  • 1 þunn húfa
  • Babynest ef flugið er á svefntíma barnsins
  • vegabréf, ferðagögn

 

Ferðtaskan (m.v vikuferð)

  • stílar, nefspray, hitamæli
  • sólarvörn (var með spf50 fyrir börn frá Eucerin)
  • bleiur fyrir allan tímann (ég gerði ráð fyrir 6 bleium á dag og það var nóg)
  • blautklútar 2 pakkar 
  • bossakrem
  • 6-8 bleiuklútar/taubleiur 
  • 1 stór bleiuklútur/taubleia (var með bleiuklút sem er 120×120 cm sem var algjör snilld til að leggja yfir kerruna þegar hún var að leggja sig á daginn til að verja hana frá sólinni án þess að henni hitnaði of mikið
  • þurrmjólk (tók með mér 1 kassa af Nan þurrmjólkurdufti og nokkrar fernur líka til að nota þá daga sem við vorum á ferðinni og í fluginu út og heim)
  • auka snuð og auka snudduband
  • peli fyrir vatn (við vorum dugleg að bjóða henni vatn í pela á daginn)
  • aukapeli fyrir mjólk 
  • sundbolur og sundbleiur
  • handklæði fyrir barnið
  • barnapíutæki (algjör nauðsyn þar sem hún lagði sig oftast inni á daginn og þá vorum við úti í sólinni og hefðum ekki heyrt nógu vel í henni án tækisins)
  • þvottaefnið hennar og uppþvottalögur í litlum brúsum til að skola úr fötunum hennar ef það verður slys
  • babynest 
  • sólgleraugu og sólhattur á barnið
  • sólskyggni í bílinn ef þið eruð með bílaleigubíl
  • 5-6 síðerma samfellur (hún svaf alltaf bara í þannig af því það var of heitt að vera í náttfötum)
  • 7 ermalausar samfellur
  • 2 sumarkjólar
  • 2 peysur (nauðsynlegt að vera með góða peysu þegar t.d. er farið í matarbúðina af því það er oft ansi kalt þar)
  • 3 sumargallar (2x stuttbuxna samfestingur, 1x ermalaus galli)
  • 3 gallar venjulegir (2x buxur og peysa, 1x galli)
  • 2 náttgallar (notaði þá reyndar ekki, en ef það er mikil loftkæling er alveg þörf á því)
  • 1 stakar mjúkar buxur
  • 3 pör af sokkum
  • 2 pör af skóm

Þetta er það sem við tókum með og þetta var mjög passlegt fyrir þessa einu viku og það var ekkert sem ég sá eftir að hafa skilið eftir heima eða vantaði sérstaklega.

IMG_4570

 

hronn


Hárið fékk loksins að fjúka. Fyrir og eftir myndir!

$
0
0

Þið sem hafið lesið færslurnar mínar eða fylgst með mér á Snapchat þá hafið þið væntanlega tekið eftir að ég er voðalega mikið að vinna með breytingar þetta árið.
Þá erum við ekki bara að tala um útlitslegar breytingar, heldur hef ég mikið verið að vinna í andlegu hliðinni, jú jú toppstykkið verður nefnilega að vera þokkalegt til þess að allt virki sem best. Þá er hugarfarsbreyting stundum nauðsynleg.

Nú hugsar kannski einhver hvað hugarfarsbreyting kemur þessari útlitsbreytingu við! Ég skal segja ykkur það, ég hef safnað hári í mörg mörg ár og aldrei þorað að klippa það stutt. Hef alveg skipt um háralit, alltaf að breyta úr því að vera dökkhærð yfir í að vera ljóshærð, svo breyti ég aftur í að vera dökkhærð og svoleiðis hefur þetta svolítið rúllað síðustu ár.

Af hverju vildi ég ekki klippa mig stutt? Nú af því ég taldi mér trú um að ég yrði bara mjög ljót með stutt hár og miklu feitari þannig… Halló Hafnarfjörður, er ekki í lagi með þig Þórey Gunnarsdóttir!

Þarna kemur að hugarfarsbreytingunni sem ég var að tala um áðan, hvernig ég hef litið á sjálfan mig eða hugsað um sjálfan mig. Svona á maður bara alls ekki að tala um sig. Og þetta er það sem ég hef verið að vinna með sjálfan mig… að hætta að hugsa svona. Ég er ekkert ljótari eða feitari þó ég klippi á mér hárið! Já þessi bloggfærsla er stútfull af upphrópunarmerkjum!!!

ÉG sjálf lít alveg eins út á vigtinni með syttra hár… tjahhh kannski léttist um nokkur grömm við það svo sem, en þið skiljið hvað ég er að fara með þessu, er það ekki?

Það var svo í febrúar á þessu ári að ég ákvað að skella mér í litun og klippingu hjá henni Öldu á Hárgreiðslustofunni Space í Kópavoginum því ég var tilbúin að gera einhverja breytingu… LOKSINS!                                              

Nú skyldi hárið klippt!

Ég hafði hitt hana Öldu einu sinni og líkaði svo vel við hana og tengdist henni strax á einhvern óútskýranlegan hátt og ákvað að hún væri hárgreiðslukonan sem ég vildi að færi með mér í þessar breytingar. Og nú er hún sé sko hárgreiðslukonan MÍN. Hún er algjör fagmaður fram í fingurgóma, virkilega vandvirk og ég tala nú ekki um hvað hún er skemmtileg.  Ég sé sko ekki eftir að hafa valið að fara til hennar, hún er einfaldlega æði.

En okei, eru þið tilbúin í myndir???

"Fyrir"

“Fyrir”

 

Já alveg um að gera að safna ónýtu hári endalaust… nei nú klippum við!

"Eftir" fyrsta skiptið

“Eftir” fyrsta skiptið

 

Ég get ekki lýst því hvað ég er ánægð að hafa bara kýlt á þetta og klippt þetta blessaða síða hár sem var alltaf uppi í snúð því ég nennti ekki að gera neitt annað við það á morgnana.

 

Og hér er ég í júní 2017

Og hér er ég í júní 2017

Hver hefði trúað því að ég hefði svo bara endað á því að klippa það ennþá styttra? Ekki ég allavega!!!

Frappó klikkar ekki

Frappó klikkar ekki

Svo er ég með snilldar “trix” fyrir ykkur, mætið með gott kaffi handa hárgreiðslufólkinu ykkar því þá fáið þið pottþétt extra gott dekur og mjög flott hár, því eins og Kalli Berndsen sagði þá er þetta allt í kaffinu elskurnar;)

Eitt að lokum, ég borgaði þetta sjálf og þetta er ekki auglýsing… bara ég að deila gleðinni. 

THOREYGUNNARS

THOREYGUNNARS

Þórey Gunnars

Quay Australia – Desi Perkins

$
0
0

Ég er búin að fylgjast með Desi Perkins Youtube stjörnu mjög lengi, en hún er með færari förðunarfæðingum. Sjálf fylgist ég mikið með förðunarfræðingum á Youtube og get ég alveg gleymt mér í marga klukkutíma við að horfa á stelpur mála sig og prófa nýjar vörur. 

maxresdefault

Núna í vor hannaði Desi sína aðra línu í samstarfi við sólgleraugna fyrirtækið Quay Astralia og eru gleraugun með þeim flottari sem ég hef séð.

hkgold1
hkblack1
 

Ég hreinlega stóðst ekki mátið og varð að kaupa mér eitt par og pantaði ég High key black fade sólgleraugun. Mín gleraugu pantaði ég á Dayoff.is, en það er íslensk heima síða sem selur Q/A sólgleraugun.

download1_77_127.1497919643

Á Dayoff.is fást aðrar týpur af glerugum frá Quay Astralia.

Halldóra hjá Dayoff.is var svo yndisleg að vilja gefa ykkur lesendum Fagurkera.is 15% afslátt af sólgleraugum að eigin vali frá laugardeginum 24 júní fram á mánudaginn 26 júní með kóðanum fagurkerar

Þannig endilega ef þú fílar stór chunky sólgleraugu ekki hika við að næla þér í þau á góðu verði. 

Þið finnið mig á snapchat: siggalena & instagram: siggalena 

cca7613a15d50ebe649efee62ee66b93

Langbestu partývefjurnar – ný færsla: nákvæm uppskrift &önnur aðferð

$
0
0

 

Ég gerði færslu í maí um uppáhalds partýmatinn minn sem eru vefjur með rjómaosti, salsasósu, smátt skorinni papriku & rifnum mozzarella osti. Ég hef fengið svo mikið af spurningum varðandi vefjurnar & mér finnst alveg einstaklega skemmtilegt þegar ég fæ sendar myndir frá fylgjendum mínum sem eru að gera vefjurnar fyrir veislu, partý, saumaklúbbinn o.s.frv. En ég hef mikið verið spurð út í nákvæma uppskrift. Ég var að gera núna 10 vefjupakka (80 vefjur) um daginn & ákvað að breyta aðeins til.

Áður fyrr smurði ég alltaf fyrst rjómaostinum á, svo salsasósunni, stráði svo papriku yfir & að lokum ostinum….& var því ekki með neina ákveðna uppskrift heldur bara dass af þessu & dass af hinu & það tók sinn tíma að smyrja vefjurnar!

Þannig að..núna ákvað ég að prufa aðra aðferð eftir að hún Hrönn Bjarna Fagurkeraskvísa var að gera vefjur fyrir veislu sem hún var með & hún s.s. henti öllum hráefnunum sem hún notaði í hrærivélina & ég hugsaði með mér að ég ætlaði svo sannarlega að prufa það næst því það sparar manni náttúrulega mikinn tíma! En til þess að það heppnist vel þá verður maður að vera með nákvæma uppskrift svo þetta bragðist vel & hlutfölin séu í lagi. Ég er búin að finna út hvað þarf að vera með mikið af hverju & þær eru enn betri en áður & það er hrærivélinni ( & Hrönn Bjarna 😉 ) að þakka!

 

Hér er nákvæm uppskrift fyrir ykkur:

1 vefjupakki (medium vefjur, 8 saman í pakka)

1 rauð paprika, smátt skorin

200 gr rjómaostur

1 dolla salsa (sem eru oftast um 260 gr.)

200 gr rifinn Mozzarella ostur (ég kaupi hvíta & græna pokann frá MS)

 

19437363_10154839014759422_8340378458535188573_n

 

Aðferð:

Byrjið á því að skera niður paprikuna & saxa svo, smátt.

Setjið rjómaostinn, salsasósuna & paprikuna í hrærivélina & leyfið þessu að blandast vel saman.

Smyrjið gummsinu (ok sorry að ég kalla þetta gumms, ég finn ekkert gáfulegra orð í augnablikinu) á vefjurnar, c.a. 2 fullar matskeiðar á hverja vefju. Athugið að ekki þarf að smyrja vefjurnar alveg út í endana þar sem endarnir eru skornir af.

Stráið osti yfir.

Að lokum rúllið þið vefjunum upp, skerið endana af sitthvorumegin & skerið svo vefjuna, úr hverri vefju verða 5 vitar.

 

VOILA, ready! :)

 

Það sem er svo sniðugt við þessa aðferð er að maður getur undirbúið þetta daginn áður. Þegar ég var að gera svona vefjur áður en ég gerði þessa aðferð þá vildi ég aldrei gera þær daginn áður því þá verða vefjurnar svo slepjulegar & maður vill hafa þetta alveg glænýtt & ferskt. Þannig að það er mjög sniðug lausn að græja gummsið daginn áður & þá er það eina sem maður þarf að gera daginn eftir er að smyrja á vefjurnar, strá ostinum yfir, rúlla vefjunum upp & skera!

 

19510670_10154839014479422_4863516138552713999_n
Gummsið góða! 




19510580_10154839015429422_1946565221830627740_n
Arnór minn gerði 10 vefjupakka með mér, sem betur fer því þetta tók sinn tíma.

 


19430095_10154839014879422_3348326416042203330_n
Mesti tíminn fer í að skera niður & saxa paprikuna.

 


19429965_10154839014609422_3150685928301943765_n
Allt að gerast!

 


19511607_10154839014194422_4909464462302790482_n
Svolítill subbuskapur sem myndast í kringum þetta 😉

 


19510630_10154839013984422_2588039261777748701_n
Ég gerði þrjá svona bakka um daginn :) Tók sinn tíma en æði að geta græjað gummsið sem fer í vefjurnar daginn áður!

 

Þið megið endilega senda mér mynd af meistaraverkinu ykkar á Snapchat, mér finnst alltaf svo gaman að sjá þegar þið eruð að gera eitthvað sem ég er að sýna ykkur..en ég get lofað ykkur einu..það verður enginn svikinn af þessum vefjum, enginn!! Ok nema kannski einhver pjattrófa sem borðar ekki eitthvað af innihaldsefninu en mér finnst þessar vefjur mjög bragðgóðar & einnig barnvænar (nota medium salsa en ekki hot).

P.S: ok eitt sem mig langar að nefna eins & ég gerði í fyrri færslunni: passið ykkur á því að kaupa EKKI salsasósu sem er sykurlaus! Ég keypti óvart þannig fyrir brúðkaupspartýið okkar Arnórs & sem betur fer er ég það gráðug að ég fór auðvitað strax að smakka & fannst eitthvað off við vefjurnar. Þá sá ég að salsasósan var með „No sugar added“ & vá hvað það var ekki málið. Allavega fannst mér það ekki málið & bragðið allt ekki eins gott! Þessar salsasósur eru til sölu í Bónus & „No sugar added“ merkið er pííínulítið þannig maður tekur alls ekkert eftir þessu.

Jæja hef þetta ekki lengra í bili.

Verði ykkur að góðu!

 

 

Þið finnið mig á Snapchat: tinnzy88 & á Instagram: tinnzy

 

TF

 

ZEBRABÖRN ~ Félag um meðfædda ónæmisgalla

$
0
0

Zebrahesturinn er tákn ónæmisgalla út um allan heim. Enginn zebrahestur fæðist með eins rendur líkt og ekkert barn með meðfæddan ónæmisgalla fæðist eins.

Í kvöld var mér boðið á viðburð í til þess að vekja athygli á þessari herferð og að sjálfsögðu þáði ég boðið og deili boðskapnum að sjálfsögðu eins vel og ég get með því segja ykkur betur frá herferðinni sem nú er farin af stað.

Herferðin er til þess að vekja athygli á meðfæddum ónæmisgöllum. Það er mjög
sjaldgæft að fæðast með meðfæddan ónæmisgalla og er herferðin hugsuð sem
vitundavakning en um leið kynning á félaginu Lind – félag um meðfædda
ónæmisgalla. Zebrabörn er lítil deild hjá félaginu Lind og er ætluð börnum og fjölskyldum
sem greinast með meðfædda ónæmisgalla.

En þann 5.júlí næstkomandi fara í sölu ótrúlega fallegar myndir í stærð A5 sem kosta aðeins 2000kr. og allur ágóði rennur alfarið til félagsins. Hægt er að versla myndirnar á WWW.ZEBRABORN.IS og í nokkrum velvöldum verslunum sem þið finnið á heimasíðu Zebrabarna.

Myndirnar eru hannaðar af Bergrúnu Írisi Illustration og myndirnar prentaðar hjá Prentun.is og gáfu þau sína vinnu< 3

Ég hvet alla til þess að kynna sér félagið og líka við facebook síðu Zebrabarna sem má finna HÉR

Endum svo þessa stuttu færslu á nokkrum myndum sem ég tók á þessu yndislega kvöldi

 

Myndirnar fjórar

Myndirnar fjórar

 

19668315_10155250423051413_757513437_n Sætar syndir gáfu köku 19755991_10155250423161413_808753793_n
Salka Sól tók við fyrstu myndinni

Salka Sól tók við fyrstu myndinni

 

tinnzy88 á Snapchat mætti líka

Snapparinn TINNZY88  mætti líka

 

Við Tinna keyptum svo að sjálfsögðu myndir

Við Tinna keyptum svo að sjálfsögðu myndir

 

Nína Rós dóttir mín alsæl að fá að koma með

Nína Rós dóttir mín alsæl að fá að koma með

 

TAKK FYRIR MIG <3

snapcode

Sous Vide Creme Brulée

$
0
0

Okkar uppáhalds eftirréttur er Creme brulée sem er einskonar vanillubúðingur eldaður í vatnsbaði með bræddum sykri ofaná sem myndar harða skel yfir toppinn.

Við höfum undanfarið notað sous vide tækið okkar frá Anova til þess að búa til þessa dásemd.
Hér kemur uppskriftin :

500 ml rjómi

2 vanillustangir

7 eggjarauður

100 gr sykur

Smá salt eftir smekk

 

Hitum rjómann  rólega í potti með fræjunum innan úr vanillustöngunum.

Á meðan blandan hitnar hrærum við eggjarauður og sykur saman í skál þar til blandan er orðin ljós.

Passa þarf að rjómablandan fari ekki upp fyrir 75 gráður

 

Þegar hún er tilbúin blöndum við rjómanum hægt útí eggjablönduna og hrærum vel.

Setjum blönduna í krukkur með þéttihring. Keyptum okkar í Ikea á klink

IMG_20170409_185203

Krukkurnar fara svo í vatnsbaðið á 80 gráður í einn klukkutíma, leyfum þessu að kólna áður en við setjum krukkurnar í ísskáp.

IMG_20170409_185215

 

Áður en búðingurinn er borinn fram setjum við þunnt lag af hrásykri yfir toppinn og bræðum með brennara.

IMG_20170409_211105

Bon Apetit 😀

 

 Hanna

 

 

 

 

Baby brezza – algjört snilldartæki

$
0
0

Ég fjárfesti um daginn í algjöru snilldartæki sem heitir Baby brezza formula pro og bara varð að skella í færslu og segja ykkur frá því. 

Þetta er tæki sem virkar eiginlega eins og kaffivél nema að það er fyrir pela. Tækið hitar vatn uppí rétt hitastig og blandar við það réttu magni af þurrmjólk og eina sem þú þarft að gera er að setja pelann undir og ýta á einn takka.  Það tekur einungis 10-20 sekúndur að fá fullan pela af rétt blandaðri mjólk í réttu hitastigi. 

Screen Shot 2017-07-06 at 17.06.40

Ég ætla ekki að segja ykkur hvað ég hefði elskað að eiga þetta tæki alveg frá því að dóttir mín fæddist og hversu mikinn tíma þetta hefði getað sparað mér !!! Hversu oft var maður að blanda mjólk sjúklega þreyttur og gleymdi sér þegar maður var að telja skeiðarnar af þurrmjólk ofaní og þurfti að byrja aftur uppá nýtt ? Það var mjög oft ! Þannig að mitt stærsta klúður var að sjálfsögðu að kaupa ekki þetta tæki um leið og hún fæddist. Ég talaði við eina mömmu um daginn sem á tvíbura og á svona tæki og hún sagði  mér að þetta væri mikilvægasta og lang mest notaða tækið á þeirra heimili og ég get sko ímyndað mér það – hún þarf að búa til tvöfalt magn af pelum og þetta ætti eiginlega bara að vera skyldueign fyrir fjölburamömmur. 

Screen Shot 2017-07-06 at 16.54.22 

Þessi vél virkar með langflestum þurrmjólkurduftum en ég er að nota Nan 1 fyrir mína núna og það er stilling 3 en það fylgir með vélinni listi yfir allar þurrmjólkurtegundir og hvaða stilling hentar fyrir hverja tegund. Það kemst ofaní vélina heill kassi af Nan mjólk eða 700g. Svo þarf bara að fylgjast með að það sé nóg vatn á vélinni og þá tekur enga stund að skella í pela fyrir litla krílið. 

Vélin passar fyrir allar tegundir af pelum og það er hægt að stilla hæðina á plötunni sem pelinn stendur á til að hann passi fyrir þinn pela. Þetta smellpassar allavega með Difrax pelunum okkar sem eru einu pelarnir sem við notum. Það er hægt að velja um 60, 120, 180, 240 og 300ml af mjólkurblöndu til að setja í pelann og það er hægt að skipta á milli stærða með einum takka sem er mjög þægilegt. Við einmitt erum oft ekki alveg viss hvað litla okkar á eftir að drekka mikið og þá er fínt að gera bara lítið í einu og bæta svo bara við í stað þess að gera meira og þurfa svo alltaf að henda restinni. 

IMG_4742

Ég er alveg ótrúlega sátt með þessa vél og sé sko ekki eftir því að hafa fengið mér hana. Mæli sko 150% með henni fyrir allar pelamömmur þarna úti sem vilja koma í veg fyrir pirring, sull og vesen við að blanda pela og spara sér helling af tíma sem þær geta nýtt frekar í svefn eða til að knúsa litla gullið sitt. 

 

hronn

Andabringusalat með döðlum og hunangssinnepsósu

$
0
0

Þetta salat er einn af mínum uppáhalds réttum til að bjóða uppá þegar ég fæ fólk í mat til mín. Þetta er ótrúlega einfalt að útbúa og hægt að undirbúa að stórum hluta fyrir fram og það er því einstaklega þægilegt þegar maður er að fá gesti og þarf að huga að öðrum hlutum líka eða er í tímaþröng. Þó þetta sé salat er það mjög matarmikið útaf andabringunni og því er það alveg full máltíð eitt og sér með góðu brauði.  Einnig hef ég notað þetta salat sem smárétt í veislu með öðrum smáréttum og ber það þá fram i litlum plasskálum.  

unnamed-39

Andabringusalat 

  • 1 frönsk andabringa
  • kál
  • konfekt tómatar
  • vorlaukur
  • döðlur
  • fetaostur
  • furuhnetur ristaðar
  • BÓ sósa frá Hamborgarafabrikkunni eða önnur góð hunangssinnepsósa

 

pjimage

Byrjið á því að elda andabringurnar. Ég steiki mínar á sjóðheitri pönnu í stutta stund á fituhliðinni og set þær svo í ofninn með kjöthitamæli og hita uppí 61°. Þetta er hægt að gera daginn áður en salatið er borið fram.

IMG_3923

Skerið niður kál, vorlauk og konfekttómata.  Skerið andabringu í þunnar sneiðar. Ristið furuhnetur og klippið niður döðlur í lita bita. Salatinu er svo raðað upp og þá er byrjað á káli, tómötum og rauðlauk og ofaná það fara döðlur og furuhnetur.

IMG_3924

Þá er andabringusneiðunum raðað yfir grænmetið og fetaostinum stráð yfir. Loks er sósunni sprautað fallega yfir allt saman. Gott er að bera salatið fram með smá auka sósu og góðu súrdeigsbrauði. 

IMG_3925

hronn


Að eiga börn með stuttu millibili

$
0
0

Ég er rosalega oft spurð að því hvernig það sé að eiga börn með svona stuttu millibili en það eru einungis 15 mánuðir á milli barnanna okkar hjóna. Strákurinn okkar er fæddur í nóvember 2013 og stelpan í janúar 2015 og ná þau því tveimur skólaárum á milli sín.

Það eru kannski einhverjir sem spyrja sig að því hvort við hjónin höfum bæði skrópað í kynfræðslu daginn sem getnaðarvarnir voru kynntar í grunnskóla.. Og ég held að svarið sé nokkuð augljóst!

En að öllu gríni slepptu.. Þegar ég varð ólétt í fyrra skiptið höfðum við hjónin verið að reyna í dágóðan tíma að verða ólétt og voru línurnar tvær á prikinu mjög óvæntar og kærkomnar. Meðgangan gekk erfiðlega en gleði og hamingja yfir tilvonandi barni var okkur þó ofar í huga.

Þegar strákurinn svo loksins kemur í heiminn eftir langa og erfiða fæðingu tóku við erfiðir tímar. Hann var svo mikið kveisubarn að það væri efni í heila bók.

Þegar hann er svo orðin 6 mánaða fer ég að finna breytingar á líkamanum mínum og átta mig á því að ég sé nú líklega orðin ólétt aftur. Ég pissa á próf sem var orðið jákvætt nánast í höndunum á mér áður en pissubunan fór á það!

Þetta var mikið sjokk fyrir okkur foreldrana þar sem við höfðum fengið þær fréttir að við gætum að öllum líkindum ekki orðið ólétt án aðstoð læknisvísinda en þarna vorum við allt í einu komin með einn gullmola og áttum von á öðrum! 1374280_10202132930754939_637422338_n

Þrátt fyrir að hafa áhyggjur af þreytu, álagi og peningum var gleði og þakklæti það sem stóð uppúr á seinni meðgöngunni.

Þegar litla prinsessan á bauninni mætir í heiminn, var Kristófer Vopni sonur okkar 15 mánaða gamall og var hann himinlifandi að fá svona litla systir til að pota í og kyssa.

Ólétt

Fyrstu tvö árin hennar eru nánast þokukennd þegar ég hugsa til baka. Þrátt fyrir að hún hafi verið mjög ljúft og gott ungabarn þá voru samt tvö lítil börn á heimilinu, ég í námi og Óttar í vinnu. Þessi tími tók mikið á og það var lítið sofið og kaffineysla heimilsins jókst til muna!

13442320_10209578444288124_7207011433826060069_n

Bæði börnin okkar fæddust með galla í ónæmiskerfinu svo mikið var um veikindi fyrstu árin sem tók sinn toll en einhverstaðar heyrði ég þá tölfræði að skilnaðartíðni foreldra með veik börn sé um 90%! Og ef ég á að vera alveg hreinskilin þá finnst mér það ekkert óeðlileg tala og í raun ekkert skrítið þar sem álagið sem fylgir því að eiga veikt barn er gríðarlegt og þó erum við heppin með hve vægur gallinn þeirra er. Þetta tók mikla samvinnu og urðum við í kjölfarið miklu sterkari eining heldur en áður.

Svo.. Þegar ég fæ spurninguna; „Hvernig er að eiga börn með svona stuttu millibili?“ Þá er það fyrsta sem kemur upp í huga mér.. „ERFITT“…

11200585_10206683030984601_7356127564246327410_n

Það er virkilega erfitt að eiga börn með svona stuttu millibili, það er lítið sofið, mikið rifist um athygli foreldra, afbrýðisemi, lítill sem engin tími fyrir sjálfan sig og oft langar manni að leggjast á gólfið með þeim og grenja líka! Okok, ég skal viðurkenna að ég hef gert það.. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar!

EN… Þrátt fyrir allt þetta, þá myndi ég ekki vilja hafa þetta neitt öðruvísi. Þau eru í dag að nálgast þriggja og fjögurra ára aldurinn og eru bestu vinir. Þau elska hvort annað og get ég ekki hugsað mér að þau væru án hvors annars. Þau geta svo sannarlega rifist, trúið mér! En hlátursköstin, knúsin og hnoðin eru bara einfaldlega það fallegasta sem ég veit um.

11428485_10206949360482672_2629683169023848086_n 13434879_10209578444128120_632225033924967570_n 20819_10206295476975993_9139244914893304174_n11693867_10207144727886735_7590014189897175356_n 17903835_10212561086852324_7608415083090576545_n 19642576_10213379675116519_3285277747502702908_n

Systkinaástin! Hún nær ansi langt og er ég alveg viss um það að þau munu vaða eld og brennistein fyrir hvort annað í framtíðinni ef þess þarf.

Þannig að skítt með þreytu, bauga og rifrildi. Nóg af kaffi, súkkulaði og góður hyljari reddar þessu stutta tímabili og áður en ég veit að verða þau orðin svo stór að það verður orðið óeðlilegt fyrir mig að kyssa tærnar á þeim á kvöldin!

Þangað til ætla ég að njóta þess til hins ýtrasta að knúsast og kjassast með þessum litlu orkuboltum mínum.. Oooog nýta þá klukkutíma sem þau eru í pössun og ég fæ að vera „ekki mamma“ í allt annað en að þrífa og taka til.. Splæsa kannski í maska og naglalakk!

Word of advise fyrir þær/þau ykkar sem eigið börn með stuttu millibili eða von á því.. Það sem hentar mér best er að vera vel undirbúin, alltaf vel skipulögð, muna að hvíla mig og gera mér grein fyrir því að þvotturinn getur beðið en ekki hvíldin. Þvottafjall í sófanum er líka eiginilega skylda fyrir alla foreldra með fleiri en eitt barn svo að…. Já og dass… rúmlega dass… eða bara öll flaskan af kæruleysi þarf eiginlega að fylgja líka!

Þangað til næst,

aníta

Fylgið mér á Snap : anitaeh

snaptag

 

Flutningar & framkvæmdir framundan – fyrirmyndir

$
0
0

 

Jæja þá er loksins komið að því að við Arnór fáum nýju íbúðina okkar afhenta á morgun, eftir langa bið!

Loksins, loksins, loksins erum við að flytja í íbúð sem er meira en nógu stór fyrir okkur.

Þetta verður í NÍUNDA skiptið sem við flytjum síðan við byrjuðum að búa saman í mars 2012! Úff sko, eins gott að við stöldrum við í nýju íbúðinni í a.m.k 10 ár, ég neita að flytja aftur næstu árin!

Þetta er s.s. þriðja íbúðin sem við kaupum, en fyrstu tvær voru litlar, sú fyrsta voru rúmir 50 fermetrar & önnur 62 fermetrar (þessi sem við erum í núna). Við vissum það alveg að þegar við keyptum okkur þessa íbúð á Völlunum fyrir rúmu ári að við myndum ekki stoppa lengi, eða allt að þrjú ár í mesta lagi. Vegna þess að íbúðin er lítil & aðeins með tveimur svefnherbergjum & við erum tvö fullorðin, tvö börn & tveir kettir 😉 

Ég er algjör fasteignaperri & í raun hefði ég átt að vera fasteignasali þar sem ég ligg án gríns inn á mbl.is á hverjum degi að skoða fasteignir sem eru til sölu í Hafnarfirði, bara af því að mér finnst það svo gaman!

Svo kom að því að ég sá þessa íbúð sem við erum að kaupa & þetta var greinilega ment to be. Ég var búin að sjá hana nokkrum dögum áður á sölu en mér fannst hún of dýr, og svo var hún farin út þannig það náði ekki lengra. En síðan kom hún aftur á sölu nokkrum dögum seinna & þá búin að lækka um 1M í verði þannig að ég hugsaði með mér að þetta gæti hugsanlega gengið upp.

Við fengum að skoða & hringdum svo í fasteignasalann 10 mínútum seinna & gerðum tilboð, sem var aðeins lægra en ásett verð & eigendurnir sögðu nei, þannig að við hugsuðum með okkur að ef þetta væri draumaíbúðin þá þýddi ekkert annað en að bjóða ásett verð, þannig við gerðum það & þau samþykktu.

Við vorum áður búin að skoða nokkrar íbúðir & bjóða í þrjár, en þessi fasteignamarkaður er svakalegur þessa dagana þannig að við fengum ekkert tilboð samþykkt (samt buðum við t.d. yfir ásett verð í eina af þeim!). En ég er svo fegin að við fengum hin tilboðin ekki samþykkt því þær voru allar með þremur svefnherbergjum en þessi sem við erum að kaupa er með fjórum, sem var alltaf draumurinn minn, en svoleiðis íbúðir eru mun sjaldgæfari.

Íbúðin sem við erum að kaupa er um 110 fermetrar & svo fylgir með 5 fermetra geymsla, samtals um 115 fermetar. Loksins verðum við með pláss & meira en það! En íbúðin á eftir að vera hálftóm þar sem við eigum eftir að þurfa að kaupa slatta af kommóðum & skenkum, en það er ekkert stress & verður bara gaman að koma okkur fyrir næstu mánuðina <3

Það sem við ætlum að gera í nýju íbúðinni er m.a: mála alla íbúðina, gera baðherbergið upp frá A-Ö, skipta um öll ljós, kaupa nýja gardínur í alla gluggana (frá Ali auðvitað;)), í eldhúsinu ætlum við svo að skipta um borðplötuna, helluborðið, háfinn, vaskinn, blöndunartækin, bakaraofninn, kaupa nýjar höldur & hugsanlega filma innréttinguna. En allt þetta ætlum við að gera á rúmum tveimur vikum eftir að við fáum afhent, eða já vonandi náum við því hehe..

Það eru fleiri hlutir sem við ætlum að gera en það verður að fá að bíða, t.d. þarf að klára vegg í stofunni & setja hurð fyrir fjórða svefnherbergið..

Þau sem áttu íbúðina eru búin að endurnýja rafmagnið í íbúðinni, skipta um allar hurðar, alla fataskápa & setja nýtt parket þannig að við erum mjög ánægð með það!

En hér koma fyrirmyndirnar & ég hlakka mikið til að sýna ykkur eftirmyndir!

 

 

0ae8d6046d13e793dab322cac35a60049ccc7bd6

Stofan. Hún er mjög rúmgóð & svo er fjórða svefnherbergið þarna til hægri út í enda.

 

41dfac9faeca8e690118628a9d58dc89502006fd

Baðherbergið. Ég er mjööög spennt að sýna ykkur eftirmynd af því!

 

bff209bac0c2847cdd97e12e39dc72b43df94b00

Eldhúsið.

 

7079841505bffe4a85a65e5a7610bbae3891283a

Hjónaherbergið.

 

d22c0a41abaada79a38eb89ac947d2f3cbd2c781

Eitt af barnaherbergjunum.

 

2292db786a99afbb47ebe8230ada707aecdf8c6a

Gangurinn.

 

4ea7d14b38da339ef8bc5cebbd0c990b9d4d0462

Pallurinn. Okkur langar til þess að hækka framhliðina aðeins fyrir næsta sumar.

 

 

Ég ætla leyfa fylgjendunum mínum að fylgjast með allri herlegheitinni á Snapchat þannig að þeir sem hafa áhuga á að fylgjast með svoleiðis megið endilega koma með í Snapchat partýið :)

 

19959092_10154892662749422_4851378528896000840_n 

Snapchat: tinnzy88
Instagram: tinnzy

TF

Þarf ég maka til þess að eignast fjölskyldu?

$
0
0

Síðasta vor fór ég til kvennsjúkdómalæknis sem er ekki frásögu færandi nema hvað hann opnaði augun mín ennþá frekar fyrir því hvað ég er orðin gömul en í haust fagna ég 32 árum.

Í svona þrjú ár er ég búin að hugsa mikið um það hvað mig er farið að langa í fjölskyldu. Þið sem þekkið mig vita það mæta vel að ég er ekki í sambandi og hef ekki verið í langan tíma. En spurningin sem ég er búin að velta fyrir mér í þennan tíma er; ,,þarf ég að finna mér mann til þess að eignast fjölskyldu”?

having-a-baby-alone

Fyrir tveimur árum síðan hitti ég vinkonur mínar yfir mat og drykk og spurði þær álits á þessum vangaveltum mínum. Þær voru fullar stuðnings og mjög spenntar fyrir hugmyndinni og planið sem ég ætlaði að setja í gang. Samt sem áður var tíminn ekki réttur, ég bjó ennþá heima hjá foreldrum mínum og stundaði nám. Ég var að byrja ferlið allt saman hjá WOW Air og fannst mér það allt svo svakalega spennandi að mér datt ekki í hug að fórna því, þar sem flugfreyju starfið hefur verið draumur frá því að ég man eftir mér (getið lesið meira um það hér). 

tumblr_static_large__5_

Í dag er ég búin að koma mér ágætlega vel fyrir, búin að kaupa mér íbúð, á fínan bíl, í góðri vinnu og lífið leikur við mig. Samt sem áður finn ég mér ekki maka, kannski er eitthvað að mér ég veit það ekki en ég er löngu hætt að velta mér upp úr því . Ég er bara eins og ég er og er mjög sátt með sjálfan mig.

Þegar ég var hjá kvennsjúkdómalækninum sagði hann við mig var; ,,Þú þarft nú að fara að huga að barneignum ef þú ætlar að eignast börn, frjósemin fer hratt niður á við eftir 35 ára aldurinn”. Þetta sló mig alveg smá þó að ég vissi vel þessar staðreyndir, af einhverjum ástæðum þá fannst mér ég ekki vera orðin þetta gömul.

 

48a84a8044c89d9502e6b11418d63774--th-birthday-birthday-ideas

Þarf ég að eiga maka til þess að eignast barn? Svar mitt við þessari spurningu er nei.

Ég er búin að lesa mikið af reynslusögum, horfa á heimildarmyndir og lesið bækur um mæður sem hafa ákveðið að verða einstæðar mæður með hjálp gjafasæðis.  Í janúar 2015 kom mbl.is með nokkrar reynslusögur af konum sem tóku ákvörðun um að verða mæður af sjálfstáðum og ég man hvað ég las allar sögurnar aftur og aftur.

Hérna er t.d. sagan hennar Söru ef þið viljið lesa um ferlið hennar.

Mother-and-baby-hands-love-wallpaper

Svona ákvörðun er ekki tekin á einni nóttu, en eins og ég sagði hérna fyrr er ég búin að hugsa um þetta í yfir þrjú ár. Samt sem áður hef ég ekki ákveðið tíma eða stund fyrir þetta verkefni. En það er eitt sem er alveg öruggt að ef ekkert breytist í mínu lífa á næsta ári þá mun ég nýta mér þessa tækni og eignast barn að sjálfstáðum. 

En vitandi það að bæði fjölskyldan mín og vinir mínir styðja mig í þessu gerir þessa ákvörðun 100 sinnum léttari, því að ég er alveg 100% á því að þetta eigi ekki eftir að vera auðvelt ferli og er ég mjög þakklát fyrir það.

Á heimasíðu einstakra mæðra eru fullt af upplýsingum fyrir mæður sem hafa valið það að eignast börn upp á eigin spýtur, hvort sem það sé með tæknfrjóvgun eða ættleiðingu. Þar er hægt að finna allar þær upplýsingar sem kona þarf að fá svör við í þessum hugleiðingum. 

Happy Mother And Son

Ég leyfi ykkur að sjálfsögðu að fylgjast með framvindu mála. 

Þangað til næst, 

cca7613a15d50ebe649efee62ee66b93

Þið finnið mig á snapchat: siggalena & instagram: siggalena

Innlit í Rituals í New York

$
0
0


Einhvern tíman er allt fyrst og ég fékk að fara til New York í fyrsta skipti um daginn, eitthvað sem hefur lengi verið á listanum yfir drauma áfangastaði til að heimsækja.

IMG_20170604_133139
Þegar ég var á röltinu þá rakst ég á svo ótrúlega fallega búð sem hefur algjörlega farið framhjá mér áður en ég hreinlega sogaðist inn og heillaðist um leið.

IMG_20170604_124153
Merkið heitir Rituals og hefur nokkrar vörulínur með mismunandi illmum fyrir líkama og sál..
Þetta fallega tré hafði ótrúlega mikið aðdráttarafl.

IMG_20170604_124754
Starfsfólkið þarna inni var svo æðislegt og kom fram við mig eins og prinsessu. Þær buðu mér að smakka te meðan ég skoðaði búðina og tóku mig svo að vaskinum þar sem þær leyfðu mér að prófa vörurnar þeirra og fékk létt handanudd í leiðinni :)
IMG_20170604_124014

Fyrst fékk ég að finna lyktin af öllum tegundunum til að sjá hvaða lína hentaði mér best.

IMG_20170604_124107

Ég valdi Ritual of Sakura sem er japansk blóm

Hendurnar þvegnar upp úr sturtufroðu sem er ótrúlega mjúk

Hendurnar skrúbbaðar með grófum skrúbbi

því næst þvegnar með sturtu olíu sem nærir húðina

Létt handanudd með nærandi kremi.

IMG_20170604_124738
IMG_20170604_124748

Elska þessar uppstillingar í búðinni, hlutir sem ég pæli mikið í eftir að hafa unnið í snyrtivörubransanum í mörg ár :)

IMG_20170604_124713

IMG_20170604_124813
Falleg ilmkerti fyrir heimilið

Það vildi svo heppilega til að mini sápurnar og kremin á hótelinu mínu eru einmitt frá Rituals, gat því prófað fleiri ilmi í sturtunni

Hlakka til að fara aftur til New york í næstu viku og kíkja í búðina aftur, mun setja ferðina inná snappið mitt — Hannsythora

Þið getið skoðað vörurnar inná rituals.com

Hanna

 

HANNSYTHORA

HANNSYTHORA

10 óþarfa vörurnar mínar fyrir nýbakaðar mæður

$
0
0

Ég gerði færslu í vetur sem var listi yfir 10 uppáhalds vörurnar mínar fyrir nýbakaðar mæður. Nú er Embla dóttir mín orðin rúmlega 6 mánaða og þá er margt á listanum dottið út og nýtt komið í staðinn af því þarfirnar hennar eru auðvitað alltaf að breytast.

Ég var svo að taka til í dótinu hennar um daginn og fara yfir þá hluti og föt sem ekki er verið að nota lengur og sá þá að það var alveg sumt sem við keyptum og héldum að við myndum alveg nota helling sem var svo bara aldrei notað. Ég ákvað því að skella í lista yfir 10 óþarfa vörur fyrir nýbakaðar mæður. Auðvitað eru allir misjafnir, bæði foreldrar og börn en þetta er allavega það sem við notuðum ekki eða keyptum of mikið af.

 

1.Angel Care hlustunartæki

Screen Shot 2017-07-25 at 12.14.50

Áður en Embla fæddist var þetta eitt af því sem ég var æstust í að kaupa af því ég var svo ótrúlega hrædd við vöggudauða og var til í að kaupa allt sem gæti hjálpað mér að minnka þá hræðslu. Þetta hlustunartæki er með plötu sem fer undir dýnuna í rúminu og nemur andardrátt barnsins og lætur þig vita ef barnið hættir að anda. Málið er hins vegar að það er ekki hægt að nota þetta tæki í vöggu eða vagni af því tækið þarf að vera staðsett rétt og tengt rafmagni og því ekki hægt að nota það á ferðinni. Fyrstu vikurnar svaf Embla útum allt, í babynest, í vöggunni, í fanginu á okkur og í vagninum og því notuðum við þetta ekkert. Það var ekki fyrr en hún var 5 mánaða sem hún fór að sofa í rimlarúminu í sínu eigin herbergi að við hefðum getað byrjað að nota þetta en þá var hún farið að hreyfa sig svo rosalega mikið að tækið er mun minna marktækt. Hlustunartækið sjálft er þó hægt að nota án dýnunnar en það er alls ekki nógu vel hannað. Það dregur mjög stutt, svo stutt að við gátum varla notað það niðri í stofu ef Embla var uppi í sínu herbergi. Eins er tækið sem á að vera hjá barninu ekki með hleðslurafhlöðum heldur á það að vera tengt í rafmagn þannig að það hentar rosalega illa til að nota þegar börnin sofa úti í vagni. Við gáfumst því fljótt uppá því og keyptum okkur Neonate tækið sem við erum alveg ótrúlega ánægð með. Með næsta barn mun ég skoða að kaupa frekar Snuza heldur en Angel Care en það er lítið stykki sem er smellt á bleiuna og nemur andardrátt barnsins og er hægt að nota hvar sem er. 

 

2.Sérstakt skiptiborð

Screen Shot 2017-07-25 at 12.16.45

Þegar ég byrjaði að hanna herbergið hennar Emblu fannst mér algjört möst að vera með skiptiborð inni hjá henni. Ég ákvað þó að kaupa ekki hefðbundið skiptiborð heldur keypti MALM kommóðu í IKEA og skiptidýnu úti í Boston með sætu áklæði. Ég held að við höfum skipt á henni svona max 10 sinnum á þessu skiptiborði. Við vorum miklu meira með hana niðri í stofu og skiptum bara á henni í sófanum á svona ferðaskiptidýnu heldur en að fara alltaf með hana upp að skipta á henni. Ég er mjög glöð að ég keypti frekar kommóðu og skiptidýnu ofaná af því kommóðan var alveg nauðsynlegt til að geyma öll fötin hennar í en ég mæli ekki með því að kaupa sérstakt skiptiborð af því oftast er maður með litlu krílin útum allt og nennir ekki að fara alltaf inní herbergi til að skipta á.

 

3.Hlýr poki í bílstólinn

Screen Shot 2017-07-25 at 12.18.21

Það voru rosalega margir sem voru að mæla með sérstökum poka í bílstólinn þegar ég var ólétt svo ég ákvað að fjárfesta í einum slíkum í Carters. Við komumst aldrei uppá lag með að nota hann. Í fyrsta lagi var Embla bara 2500g þegar hún fæddist svo hún alveg týndist í þessum poka fyrstu mánuðina og mér fannst alltaf svo mikið vesen að láta hana passa rétt i pokann og finna öll böndin til að binda hana að ég var miklu fljótari bara að klæða hana í flísgalla og skella henni í stólinn. Það er samt alveg mögulegt að þessi bílstólapoki hafi bara ekki verið nógu góður og að það séu til einhverjir betri en ég væri ekki til í að eyða miklu í það og myndi frekar nota bara hlýjan galla í staðinn og spara mér peninginn. 

 

4.Hellingur af samfellum í öllum stærðum og gerðum

Screen Shot 2017-07-25 at 12.19.14

Þetta var eitt af því sem allir töluðu um að væri nauðsynlegt að eiga nóg af, að það væri aldrei til nóg af samfellum. Ég ákvað því að kaupa vel af samfellum Í Carters þegar ég var þar þegar ég var ólétt og keypti alveg margar samfellur í hverri stærð og margar týpur í hverri stærð, síðerma, stutterma og ermalausar. Núna er staðan þannig að meira en helminginn af samfellunum sem ég keypti náði ég aldrei að nota. Ég raðaði þeim öllum upp voða fínt en svo tók ég alltaf bara þessar fremstu og af því maður var alltaf að þvo af henni þá voru þetta alltaf sömu samfellurnar fremst. Ég hugsa að ég hefði komist upp með að eiga bara 6 samfellur í hverri stærð en svo er auðvitað mismunandi hvað börn æla og slefa og annað en fyrir okkur hefðu 6 verið alveg nóg. Annað sem ég rak mig á var að ég keypti mest af síðerma samfellum af því ég vildi nú að litla krílinu yrði hlýtt en komst fljótt að því að það er miklu erfiðara að klæða þau í föt yfir samfellurnar ef þær eru síðerma af því ermarnar á samfellunni eru bara fyrir og dragast lengt upp á handlegginn svo maður þarf að grafa eftir þeim undir erminni á peysunni sem fellur ekki vel í kramið hjá pirruðu kríli sem finnst leiðinlegt að láta klæða sig. 

 

5.Stuðningsbelti/buxur 

Screen Shot 2017-07-25 at 12.21.19

Ég keypti mér svona stuðningsbelti/buxur til að nota eftir fæðinguna og hélt að það væri algjör snilld. Bæði til þess að líta betur út og eins til að hjálpa líkamanum að ganga betur saman og veita stuðning við skurðinn minn eftir keisaraskurðinn. Ég keypti mitt af erlendri síðu sem heitir bellefit.com og lofaði einhverjum svaka árangri og before and after myndirnar voru mjög spennandi. Ég byrjaði að troða mér í þetta daginn eftir að Embla fæddist og mér fannst þetta sko ekkert hjálpa. Þetta var í fyrsta lagi mjög óþægilegt og mér fannst ég bara meiri um mig í græjunni heldur en án hennar og fannst þetta skerast inn í mig á ólíklegustu stöðum. Það var líka brjáluð vinna að klæða sig í þetta og maður var alveg að kafna úr hita í þessu.  Þetta hjálpaði skurðinum mínum ekkert og mér fannst ég vera næstum með meiri verki í þessu heldur en ekki. Ég keypti mér í staðinn buxur frá merki sem heitir UpSpring sem heita C-panty og eru hugsaðar fyrir konur sem hafa farið í keisaraskurð. Þær eru háar upp,  úr mjúku en stífu efni og eru með innbyggðum silikonbút akkúrat þar sem skurðurinn er þannig að þær verja skurðinn fyrir nuddi og óþægindum og eiga að hjálpa til við gróanda. Þær eru meira en helmingi ódýrari og mun heppilegri græja. 

 

6.Mörg teppi

Screen Shot 2017-07-25 at 12.22.10

Teppi voru enn eitt dæmið um hlut sem allir sögðu að maður þyrfti að eiga nóg af. Ég hlýddi þessu samviskusamlega eins og öðrum ábendinum og birgði mig upp af teppum af öllum gerðum úti í Boston. Það kom þó fljótlega í ljós að 1-2 teppi er yfirdrifið nóg og ég notaði langmest eitt teppi sem var mjúkt ljósbleikt teppi frá Ralph Lauren. Ég á hinsvegar alveg 10 teppi í öllum þykktum og stærðum sem eru enn ofaní skúffu og ég hef ekkert þurft að nota. Ég mæli með því að eiga eitt hlýtt teppi og mögulega eitt aðeins þynnra og láta það duga. 

 

7.Nefsuga

Screen Shot 2017-07-25 at 12.22.47

Ég keypti auðvitað nefsugu áður en Embla fæddist eins og örugglega stærsti hlutinn af foreldrum gera. Ég komst þó fljótt að því að þessi suga gerði nákvæmlega ekki neitt nema trylla barnið og sogaði ekki upp eitt einasta hor. Ég fékk svo að heyra frá barnalækni að það væri miklu sniðugra að láta saltvatnsdropa í nebbann á litlum krílum með kvef heldur en að erta nebbann með nefsugu og mér hefur fundist það virka mjög vel og mæli frekar með dropunum heldur en sugunni.

 

8.Sérstök brjóstagjafaföt

Screen Shot 2017-07-25 at 12.25.14

Ég keypti mér alveg slatta af sérstökum brjóstagjafafötum þegar ég var ólétt og hélt að það væri alveg nauðsynlegt. Ég fór aldrei í eina einustu flík af þessum flíkum enda fannst mér þær allar eitthvað ótrúlega óklæðilegar og ljótar. Mér fannst ég bara alveg geta verið í mínum venjulegu fötum yfir brjóstagjafahaldarann. Mér fannst allar þessar flíkur vera með einhverju sérstöku þykku efni yfir brjóstin og þegar ég var komin í gjafahaldarann og gjafahlýrabolinn og gjafabolinn þá var ég bara komin með þvílíkt þykkildi af efnum yfir brjóstin að það var full vinna að fletta þessu af þegar litla krílið var svangt. Mín reynsla var allavega sú að það er mjög mikilvægt að vera með góðan gjafahaldara en önnur föt eru eitthvað sem þú þarft ekkert endilega að eyða peningum í. 

 

9.Allskonar hjálpartæki við brjóstagjöf

Screen Shot 2017-07-25 at 12.26.03

Ég mæli með því að bíða með að kaupa allskyns hjálpartæki fyrir brjóstagjöf þangað til þú sérð hvernig brjóstagjöfin gengur og þá hvort þú þarft á þessum hlutum að halda. Ég var búin að kaupa allskonar kælipúða fyrir geirvörtur, 3 tegundir af mexikanahöttum, sérstakt silikon eða gervihúð til að setja yfir sárar geirvörtur, mjólkursafnara, geirvörtuformara og ég veit ekki hvað og hvað og ég notaði næstum ekkert af þessu. Ég var mjög heppin og lenti ekki í miklu veseni með mínar geirvörtur og því var stór hluti af þessum græjum óþarfur. Ég þurfti að leigja mér brjóstapumpu í Móðurást þegar við komum heim af fæðingardeildinni og ég fékk alveg frábæra þjónustu hjá þeim varðandi hvaða aukahluti ég þyrfti að kaupa og næst ætla ég held ég bara að bíða og sjá og kaupa eftir þörfum. 

 

10.Bílstóll sem er fallegur en alltof þungur !!

Screen Shot 2017-07-25 at 12.27.19

Við erum með bílstól frá Emmaljunga sem heitir First Class og er ótrúlega fallegur, úr hvítu leðri og í stíl við barnavagninn okkar frá Emmaljunga. Það er þó einn alveg rosalega stór galli við þennna stól og það er hvað hann er fáránlega þungur. Bara stóllinn sjálfur er 5 kg og þá á eftir að setja barnið í hann. Þetta slapp alveg til að byrja með en eftir því sem barnið þyngist því erfiðara verður þetta og þá er það sko alls ekki þess virði að bílstóllinn sé rosa flottur ef þú getur varla loftað honum. Við vorum með stólinn í afmælisboði um daginn og hittum vini okkar sem eiga Maxi Cosi stól og þvílíkur munur að halda á honum og þessum. Ég mæli allavega algjörlega með því að pæla í þyngdinni á stólnum áður en þú velur þér bílstól.

 

hronn

 

Viewing all 1072 articles
Browse latest View live